Fáðu alvöru verðmat á eignina þína

Viltu vita hvað eignin þín selst á?

Ég býð upp á frítt og skuldbindingarlaust verðmat þar sem farið er yfir markaðsstöðu eignarinnar, samanburðareignir og raunhæft söluverð miðað við aðstæður á markaði.

Panta verðmat

Víðir Arnar Kristjánsson

Af hverju að velja mig?

14+

Ár á fasteignamarkaði

Hundruð

Ánægðra viðskiptavina

Persónuleg

Þjónusta frá upphafi til enda

Heiðarleg

Ráðgjöf byggð á reynslu

Víðir Arnar Kristjánsson

Um mig

Ég heiti Víðir Arnar Kristjánsson og starfa sem löggiltur fasteignasali.

Ég er með yfir 14 ára reynslu af fasteignamarkaðnum og hef aðstoðað hundruð einstaklinga og fyrirtækja við kaup og sölu fasteigna.

Á árunum 2013–2025 var ég eigandi og framkvæmdastjóri Domusnova fasteignasölu. Á þeim tíma óx fyrirtækið úr tveggja manna teymi í eina stærstu og öflugustu fasteignasölu landsins.

Í dag starfa ég alfarið við fasteignasölu og legg megináherslu á persónulega þjónustu, heiðarlega ráðgjöf og fagleg vinnubrögð.

Ég tel að góð fasteignaviðskipti byggist á trausti, góðum samskiptum og því að viðskiptavinurinn hafi ávallt aðgang að sínum fasteignasala þegar á þarf að halda.

Markmið mitt er að veita framúrskarandi þjónustu frá fyrsta fundi þar til viðskiptum er lokið.

Hvernig fer verðmatið fram?

Það kostar ekkert að fá verðmat og felur ekki í sér neinar skuldbindingar.

1.

Ég kem í heimsókn
Ég kem á staðinn, skoða eignina, ástand hennar, staðsetningu og þá þætti sem hafa áhrif á verðmæti hennar.

2.

Markaðsgreining
Ég fer yfir samanburðareignir, nýleg viðskipti á svæðinu og stöðu markaðarins.

3.

Raunhæft verðmat
Þú færð faglegt mat á því á hvaða verðbili eignin gæti selst miðað við núverandi markaðsaðstæður.

4.

Ráðgjöf án skuldbindinga
Ég fer yfir næstu skref með þér og svara öllum spurningum.

Panta verðmat

Fylltu út formið og ég hef samband við fyrsta tækifæri.